Auglýsing

Velkomin á heimasíðu Loga

Með þessari síðu er ætlunin að hafa aðgengilegar ýmsar upplýsingar um hestamannafélagið okkar. Þannig að félagar sem og aðrir geti fylgst með starfsemi félagsins, úrslitum móta, nefndum og því sem er að gerast hjá félaginu hverju sinni.

Hestamannafélagið Logi Biskupstungum

Holtagötu 15A. 801 Selfoss
Netföng :
Guðrún Magnúsdóttir formaður :ksb@internet.is
Sigurlína Kristinsdóttir vefumsjón heimasíðu; bjarkarbraut@simnet.is

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Fyrsta móti í Uppsveitadeild - Smala frestað vegna veðurs

27. janúar 2012 klukkan 09:30
Vegna ófærðar í uppsveitunum og mikillar hálku í veðurspá hefur verið ákveðið að fresta fyrsta móti í Uppsveitadeildinni sem átti að fara fram föstudagskvöldið 28.janúar.   Vond færð er víða um sveitir og mikil hálkuspá fyrir föstudagskvöld og helgina.  Ekki hefur verið ákveðin önnur dagsetning en það verður gert fljótlega. 
Sigurlina Kristinsdóttir

Hestadagar í Reykjavík

27. janúar 2012 klukkan 09:27
Hestadagar í Reykjavík er samvinnuverkefni LH, Höfuðborgarstofu, Íslandsstofu, Icelandair Group og hestamannafélaganna á stórhöfuðborgarsvæðinu og verða haldnir dagana 29. mars - 1. apríl næstkomandi. 

Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði þetta árið. Fimmtudag og föstudag verður farið í   reiðtúra, borðuð kjötsúpa, horft á tískusýningu, hrossaræktarbú heimsótt og horft á flotta gæðinga á lokakvöldi Meistaradeildar í hestaíþróttum í Ölfushöll.

Eins og í fyrra verður farin skrúðreið á laugardeginum 31. mars og að þessu sinni verður farinn hringur í miðbænum.  Í ráðhúsi Reykjavíkur verður eitthvað hestatengt í boði allan daginn, söngur, fræðsla og gaman.   Um kvöldið endum við svo á að horfa á flottustu töltara landsins á skautasvellinu í Laugardal: „Ístölt - þeir allra sterkustu".

Sunnudagurinn er tileinkaður æskunni.  Sýningin Æskan og hesturinn er fjölskylduhátíð í Reiðhöllinni í Víðidal sem öll hestamannafélögin á stórhöfuðborgarsvæðinu standa að. Haldnar verða tvær sýningar á sunnudeginum 1.apríl.  Sýning þessi hefur alltaf verið gríðarlega vinsæl og þar má sjá framtíðarknapa Íslands leika listir sínar með fákum sínum.

Endanleg dagskrá og nánari upplýsingar um Hestadaga í Reykjavík verður birt á næstu dögum inni á www.icelandichorsefestival.is

Viðburður sem engin áhugamaður um íslenska hestinn ætti að missa af!

Sigurlina Kristinsdóttir

Týnd hryssa

22. janúar 2012 klukkan 20:18
Týnd fylfull meri !

Dökkrauð/einlitt,  meri tapaðist úr girðingu við Bryðjuholt Hrunamannahreppi, hún er örmerkt: IS 352097800004303 Merin er fylfull. Hennar er sárt saknað!  Værum við mjög þakklát ef fólk athugaði  meðal sinna hesta. Þeir sem kunna að hafa upplýsingar vinsamlegast hafið samband við Sigurð í síma 898-3708 eða Guðlaugu s.

822-2410

Sigurlina Kristinsdóttir

Járninganámskeið í Úthlíð

16. janúar 2012 klukkan 07:54
Námskeið í járningum verður haldið 28.-29. janúar 2012 í Úthlíð, Bisk.
Kennd verða helstu undirstöðu atriði viðvíkjandi járningum.
Námskeiðið byrjar klukkan 10 á laugardag með fyrirlestri þar sem
farið verður í innri gerð fóta og hófa, verkfæri, skeifur og alla
verkþætti járningar. Verkleg kennsla síðdegis laugardag og allan
sunnudaginn.

Þáttakendur komi með járningaverkfæri og hross til járningar á
námskeiðinu.

 Um tvennskonar þátttöku er að ræða:

    a) Full þáttaka, verkleg og bókleg.

    b) Áhorfsþátttaka, bókleg og áhorf við verklega kennslu.

 Kennari Valdimar Kristinsson.

 Þátttökugjald kr. 22.000 fyrir fulla þáttöku. Innifalið í því er

 hádegisverður báða dagana og molasopi.

 

 Áhorfsþátttaka kr. 3000 (kr. 5500 með hádegisverði annan daginn)

Greiða þarf kr. 10.000 staðfestingargjald við skráningu.

 Skráning á námskeiðið er í Úthlíð í síma 6995500 eða uthlid@uthlid.is

 Faglegar upplýsingar hja Valdimar 8966753

 Möguleiki á gistingu fyrir þá sem vilja gista með afslætti. 3.500 kr.

 nóttin á mann.

 Kveðja,

 Dísa og Flóki Úthlíð

 

Sigurlina Kristinsdóttir

Uppsveitadeildin 2012

08. janúar 2012 klukkan 10:24
Þá fer að nálgast í fyrsta mótið í uppsveitadeildinni en þau eru sem hér segir;

Smali - 27 janúar        

Fjórgangur - 24 febrúar    

Fimmgangur - 23 mars    

Tölt/Fljúgandi skeið - 20 apríl   

LIÐ 1      
Gunnlaugur Bjarnason
Bjarni Birgisson Ástrún
Sólveig Davíðsson                                             
LIÐ 2      
Grímur Sigurðsson
Bryndís Heiða Guðmundsdóttir
Hermann Þór Karlsson                      
LIÐ 3      
Vilmundur Jónsson
Gunnar Jónsson
Einar Logi Sigurgeirsson                                          
LIÐ 4     
Aasa Elisabeth Emelie Ljungberg
Kristbjörg Kristinsdóttir
Guðmann Unnsteinsson             
LIÐ 5      
María Birna Þórarinsdóttir
Líney Kristinsdóttir 
Þórey Helgadóttir                                       
LIÐ 6      
Guðrún S. Magnúsdóttir
Sólon Morthens
Knútur Ármann                                                  
LIÐ 7      
Óskipað þremur Traustafélögum

Í uppsveitadeild æskunnar er dagskráin sem hér segir;

 10 mars               SMALI

 31 mars               TÖLT/FJÓRGANGUR

 28 apríl                ÞRÍGANGUR/FIMMGANGUR/SKEIÐ


Sigurlina Kristinsdóttir

Álfareið í Reykholti

06. janúar 2012 klukkan 09:25
Æskulýðsnefndin stóð fyrir álfareið í Reykholti í gær fimmtudaginn 5. janúar. Farið var frá Aratungu kl.16.30 og síðan var gengið að Friðheimum þar sem sungin voru áramótalög. í forreið voru Álfakóngur og Álfadrottning en að þessu sinni voru það Sigríður Magnea Kjartansdóttir of Sölvi Freyr Jónasson. Þau mættu á hestunum sínum sem voru sannalega prúðbúnir og flottir.  Í Friðheimum gæddu gestir sér á heitu kakó og kökum og síðan var spjallað og krakkarnir ærsluðust í snjónum. Þetta var skemmtileg stund og gamann að kveðja jólin saman og fagna nýju ári í góðum félagsskap.Sjá myndir http://logakrakkar.blogspot.com/
Sigurlina Kristinsdóttir

Viðtal við Karitas Ármann

02. desember 2011 klukkan 13:27
Bendum Logafélögum á viðtal sem birtist í eidfaxa við Karitas Ármann en hún stóð sig vel í hestamennskunni á árinu sem er að líða.
http://eidfaxi.is/frettir/2011/12/thjalfar-synir-keppir-og-ferdast-vidtal-vid-karitas-armann
Sigurlina Kristinsdóttir

Nestor frá Kjarnholtum 1 hæst dæmda kynbótahrossið á haustfundi Loga

27. nóvember 2011 klukkan 19:00
10. nóvember sl. Var haustufundur Loga haldinn. Auk hefðbundina fundarstarfa voru ræktunnarverðlaun Loga veitt, en þau eru veitt þeim félagsmanni sem á hæst dæmda kynbótahrossið ár hvert. Það var Guðný Höskuldsdóttir í Kjarnholtum sem hlaut verðlaunin að þessu sinni fyrir stóðhestinn Nestor frá Kjarnholtum 1. Hann er undan  Gæju frá Kjarnhlotum 1 og Kjarna frá Þjóðólfshaga 1   og hlaut í aðaleinnkun 8,30.

Það er venja á haustfundum að fá gestafyrirlesar til að fræða okkur Logafélaga um allt hvað eina er við kemur hestamennskunni. Að þessu sinni var það Sigurður Torfi, járningarmeistari, sem var gestur fundarins. Það er skemmst frá því að segja að Sigurður hélt afar fróðlegan og skemmtilegan fyrirlestur um hófa, hófhirðu og járningar. Fyrirlesturinn var fagmannlega og vel framsettur, alltaf gaman þegar fagmenn leggja sig alla fram, jafnvel þó um sé að ræða heimsókn í  smærri félög.

Á fundinum barst æskulýðsnefnd Loga, vegleg peningagjöf. Hrossaræktarfélag Biskupstungna gaf 30.000- kr til æskulýðsstarfa.  Tilefnið var að skömmu áður hélt Hrossaræktarfélagið folaldasýningum. Dómarar þar voru þeir feðgar Gunnar Arnarson og Eyvindur Hrannar, Grænhólsbændur og  gáfu þeir vinnu sýna til æskulýðsstarfa. Þar sem ekki er formlegt æskulýðsstarf hjá Hrossaræktarfélaginu ákvað stjórn félagsins að peningarnir færu til æskulýðsstarfs Loga. Stjórn Loga þakkar þeim feðgum og Hrossaræktarfélagi Biskupstungna, kærlega fyrir veglega gjöf. Grænhóls fjölskyldan hefur oftar en ekki sýnt hestamannafélögum hér um slóðir mikla velvild. Kærar þakkir fyrir það.

Að lokum er rétt að geta þess að á fundinum var svo hljóðandi tillaga stjórnar sammþykkt:

Stjórn Loga leggur til eftirfarandi tillögu á haustfundi 10. Nóv 2011:

Vilji menn öðlast keppnisrétt hjá hestamannfélaginu Loga, verður knapi og hesteigandi að vera skráður í félagið fyrir lok janúar á keppnisári.

Fh. Stjórnar Loga, Guðrún S. Magnúsdóttir.

Sigurlina Kristinsdóttir

Sölusýning í Flúðahöll

07. nóvember 2011 klukkan 17:20
Hætt hefur verið við sölusýningu sem vera átti í reiðhöllinni að Flúðum næstu helgi um óákveðinn tíma.
Sigurlina Kristinsdóttir

Reiðtygjaþrif

03. nóvember 2011 klukkan 12:29
Logakrakkar!
 við ætlum að hittast hress og kát og þrífa reiðtygin okkar  í Fellskoti föstudaginn 4.nóvember kl. 16:30. Nefndin ætlar að útvega sápu, svamp og feiti en þeir sem eiga geta tekið með sér. Þegar þrifum lýkur ætlum við að snæða saman eitthvað góðgæti. Foreldrar mikið velkomnir að hjálpa til við þrifin. Stefnum að því að vera búin kl.19:00. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku barna og foreldra í síma :

Sigurlína:  695-1541 eða hjá  Sirrý :   892-8346

Nefndin.        

Sigurlina Kristinsdóttir